|
| Vörur og vöruúrval |
|
| Rosa design leggur áherslu á sérstakar munsturgerðir sem eru útfærðar á bómullarboli í mismunandi litum. Fatalínan hefur slegið í gegn hjá konum á öllum aldri og er nú fáanleg í vefversluninni, en einnig er hægt að skoða og sérpanta fleiri vörutegundir með því að senda okkur fyrirspurn í gegnum netpóst eða hafa samband í síma 822-8214. |
|
|
|
| Skráning og notendaupplýsingar |
|
| Þegar þú verslar í fyrsta sinn í netversluninni okkar þarftu að skrá og velja nýtt notendanafn og lykilorð. Þetta er einfalt ferli sem tekur ekki nema nokkrar mínútur. Netföng sem skráð eru á vefnum eru skráð á póstlista í eigu Rosa design og er einungis notaður til að senda áskrifendum upplýsingar um tilboð og þjónustu Rosa design. |
|
|
|
| Skilafrestur |
|
| Almennur skilafrestur á vörum úr netverslun okkar eru 30 dagar, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Hægt er að skila vöru gegn framvísun reiknings og fær viðkomandi þá inneignarnótu í versluninni Rosa design, Skólavörðustíg 10 101 Reykjavík. |
|
|
|