FRÉTTIR

 

SÉRHÖNNUN

Við hönnun sína notar Rósa Helgadóttir mest efni eins og ull, silki og bómull. Kvenleiki og tímaleysi er ein af sérstöðu hönnunarinnar. Eldri flíkur eru endurnýttar í takt við umhverfisvernd og vistvænan lífsstíl og eykur endurnýtingin einnig sköpunargleði og frumleika. 

Rósa annast sérhönnun allt frá efnisgerð til lokaútkomu fatnaðar og fylgihluta, í samráði við viðskiptavini. Mest eftirspurn hefur verið eftir sérhönnuðum kjólum og sjölum.

This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

 


 

FYLGIHLUTIR

Fylgihlutirnir frá Rósa Design hafa vakið athygli fyrir sérstöðu þar sem hún tengir saman silfur og gúmmí á frumlegan hátt. Silfurnælurnar eru formaðar líkt og gúmmíteygjur og armbönd eru gerð úr blúndu og gúmmíi.

This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

 

 

Fréttablaðið, 23. júní 2011