UM RÓSU

netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Rósa Design var stofnað árið 2003 af Rósu E.R. Helgadóttur sem hefur undanfarin ár getið sér gott orð fyrir frumlega og góða hönnun. Hún sækir innblástur í íslenska náttúru, landslagið og veðráttuna sem hún hefur tvinnað saman á sérstakan og nútímanlegan hátt.
Rósa útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2002 en hún stundaði einnig nám við Design Academy of Eindhoven í Hollandi, Myndlista- og handíðaskólann og Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hún hefur einnig sótt fjölda námskeiða s.s. við búningahönnun, pólýgrafíu, þrívíddar mótun og þæfingu.
Rósa hefur tekið þátt í mörgum samsýningum hérlendis og erlendis og þegið ýmsa styrki og tilnefningar fyrir hönnun sína.